Páfagarður

Habemus Papam! Leó XIV er nýr páfi

Nokkrum mínútum eftir kl. 18:00 að staðartíma þann 8. maí 2025 steig hvítur reykur upp frá reykháfnum á Sixtínsku kapellunni í Róm sem gaf til kynna að nýr páfi hafi verið kjörinn. Um klukkutíma síðar kom Dominique Mamberti kardináli út á svalir Péturskirkjunnar og kynnti hinn nýkjörna páfa, Robert Francis Prevost kardínála, sem hefur tekið páfanafnið Leó XIV.

Lífshlaup hins nýkjörna páfa:

Leó XIV páfi er fæddur 14. september 1955 í Chigaco í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

Ungur að árum gerðist hann munkur í Ágústínusarreglunni og vígðist í regluna árið 1981, hann hlaut prestvígslu árið 1982 og lauk námi í kirkjurétti árið 1984 og síðar doktorsprófi árið 1987.

Robert Francis Prevost starfaði í mörg ár við trúboðsstarf í Perú, á árunum 1985 til 1986 og frá 1988 til 1998. Hann varð yfirmaður Ágústínusarreglunnar í Chigaco frá 2001 til 2013 og sneri síðar aftur til Perú árið 2015 sem biskup í Chiclayo. Árið 2023 gerði Frans páfi hann að prefekt biskuparáðsins og forseta Páfagarðsnefndarinnar fyrir Rómönsku Ameríku. Frans gerði hann síðar að kardinála sama ár.

Þann 8. maí 2025 var hann kjörinn páfi og valdi nafnið Leó XIV. Hann er fyrsti bandaríski ríkisborgarinn og fyrsti ríkisborgari Perú sem kjörinn er páfi. Leó XIV páfi er sá 267. í röð páfa, frá upphafi.