Messa fyrir páfakjöri 7. maí
Miðvikudaginn, 7. maí kl. 18.00 verður messa fyrir páfakjöri í Dómkirkju Krists konungs i Landakoti.
Bæn fyrir Konklave:
Drottinn, þú leiðir okkur fyrir milligöngu páfans, hins sýnilega hirðis þíns á jörðu, Við biðjum þig að vera nærri á komandi kosningasamkomu.
Úthelltu Heilögum Anda þínum yfir viðstadda kardínála, Drottinn, svo að endurnýjuð hvítasunnuhátíð verði í kirkju þinni.
Gefðu þeim visku, hyggindi og hugrekki sem þeir þurfa, til að kjósa þann sem þú hefur valið til að leiða okkur og leiðbeina.
Við þörfnumst þín, Drottinn. Heyr bæn okkar og gefðu okkur að gjöf heilagan eftirmann Péturs til að stjórna í þínu nafni. Amen.