David B. Tencer OFMCap. Reykjavíkurbiskup hvetur alla, jafnt kaþólska sem alla aðra velviljaða til þess að biðja fyrir skjótum bata Leó páfa og fyrir heilbrigðisstarfsfólkinu sem mun annast fyrirhugaða aðgerð til að fjarlægja lítinn, staðbundinn hnút í lunga hans.
Páfi greindi frá því, í gær, sunnudag 11. október, að við reglubundna læknisskoðun hafi hnútur fundist í lunga hans. Meinið er á frumstigi. Aðgerðin verður framkvæmd á Gemelli-spítalanum í Róm snemma í næstu viku. Þar er sjúkrastofa sem er sérstaklega ætluð páfa. Búist er við að það taki hann um viku að jafna sig.