Norðurlönd

Haustfundur biskuparáðs Norðurlanda í Paderborn

Biskupar Norðurlanda ræddu samheldni í samfélaginu, heimssýnódu og kristna sjálfsmynd

Paderborn – Dagana 21. til 25. september 2026 hélt Biskuparáð Norðurlanda (NBK) haustþing sitt í borginni Paderborn sem er í Vestfalía-héraðinu í Þýskalandi.

Að boði Udo Markus Bentz erkibiskups frá Paderborn og Bonifatiuswerk komu biskupar Norðurlanda saman í Immaculata-setrinu og í húsi Bonifatius til að ræða brýn mál sem kirkjan og samfélagið standa frammi fyrir. Auk heimssýnódu fjallaði ráðstefnan um samheldni í samfélaginu, að takast á við framandleika í heimi sem er í kreppu sem og framtíð fjölskyldunnar.

Mitt á milli fósturjarðarinnar og opnunar gagnvart heiminum: Varden biskup kallar eftir yfirvegun í umræðunni um fólksflutninga

Í opnunarræðu sinni sem var undir yfirskriftinni „Að taka á móti ókunnugum“ bar forseti biskuparáðssins, Erik Varden biskup OCSO (Trondheim og Tromsø), saman söguna um Babýlonsturninn í Biblíunni við áskoranir samtímans. Í ljósi hnattrænnar kreppu og vaxandi popúlisma varaði Varden við harðnandi opinberri umræðu:
„Sem kristnir menn verðum við að láta í okkur heyra. Það er skylda okkar að rétta þeim hjálparhönd sem á þurfa að halda, opna dyr okkar fyrir heimilislausum og deila efnislegri velmegun okkar með fátækum.“

Á sama tíma lagði Varden biskup áherslu á nauðsyn þess að varðveita menningu innfæddra og taka ábyrgð: „Kristna áskorunin sem við stöndum frammi fyrir […] er að halda jafnvægi á milli tvenns konar verkefna: Að efla einingu og sjálfsmynd þjóðarinnar og vera samtímis opin fyrir þeim sem þurfa á því að halda sem og ókunnugum.“

Biskuparnir kunngjörðu hirðisbréf um fólksflutninga fyrir 25. október 2026.

Samræður við kirkjuna á staðnum
Auk vinnufunda heimsóttu biskuparnir guðfræðideild háskólans í Paderborn og skráðu nafn sitt í gestabók borgarinnar í ráðhúsinu. Norðurlandabiskuparnir (NBK) hittu gestgjafa sinn í Herne, þangað sem Bentz erkibiskup hefur tímabundið flutt opinbert aðsetur sitt. Þar tók formaður NBK, Erik Varden biskup, þátt í pallborðsumræðum um viðfangsefnið: „Kirkjan í veraldlegu samfélagi.“ Bentz erkibiskup og Varden biskup ræddu við fulltrúa leikra og lærðra í kaþólskri þjónustu um andlega vakningu, reynslu af trúboði og spurninguna um það sem heldur kristnum mönnum gangandi á tímum djúpstæðra samfélagsbreytinga.

Að marka stefnu fyrir framkvæmd heimssýnódu biskupa 2027–2028

Biskuparnir einbeittu sér að því að hrinda í framkvæmd vegvísi biskupaþingsins. Til þess að styðja sem best við kirkjur á svæðinu ákvað biskuparáðið að bjóða sýnóduhópum sem starfa í biskupsdæmunum á svæðisfundi vorið 2027. Markmiðið er að fundirnir skili skilmerkilegri skýrslu sem kannar og metur sýnóduferlið sem hefur átt sér stað fram til þessa auk þess að varpa ljósi á og meta stofnanir kirkjusamfélagsins.

Horft fram á veginn: Að kunngjöra með nýjum hætti fegurð kristins hjónabands

Önnur megináhersla þingsins var að undirbúa komandi þing forseta biskupráða í Róm, í október 2026 undir yfirskriftinni „Tíu árum eftir Amoris Laetitia“. Biskuparnir hörmuðu að kirkjuleg málefni varðandi hjónabandið og fjölskylduna væru allt of oft einfölduð í umdeildum málum einstaklinga sem er fjallað um á opinberum vettvangi en í raun er megináskorunin sem prestar standi andspænis sú staðreynd að æ færri kjósa að ganga í heilagt hjónaband. Biskuparáð Norðurlanda (NBK) mælti því með því að beina umræðunni frá þröngt skilgreindum álitamálum: „Kirkjan verður að leggja áherslu á fegurð og þýðingu kristins hjónabands sem ævilangs, trúfasts sambands sem beri ríkulegan ávöxt. Það eigi að leggja ennþá ríkari áherslu á það í prédikun kirkjunnar.“

Að loknum nokkurra daga umræðum og gefandi samskiptum í Paderborn lýstu biskupar Norðurlandanna yfir djúpu þakklæti fyrir rausnarlegan fjárhagslegan stuðning frá Þýskalandi og fyrir hina fjölbreyttu aðstoð sem Bonifatiuswerk veitir. Þessi áratuga samstaða myndar óbilandi grunn fyrir starf presta í díasporunni á Norðurlöndum og gefur biskupunum styrk til að sinna áfram prestsskyldum í heimalöndum sínum.