Umhyggja fyrir sköpunarverkinu og gervigreind
Þann 13. október 2026 fór fram fjarfundur á vegum deildar innan Biskuparáðs Evrópu (CCEE) sem fjallar um verndun sköpunarverksins. Yfirskrift fundarins var: Umhyggja fyrir sköpunarverkinu og gervigreind. Þar var umburðarbréf Leó XIV páfa: „Magnifica Humanitas“ í brennidepli.
Á fundinum komu saman biskupar og fulltrúar evrópskra biskuparáðstefna til að kanna tengslin milli vistfræðilegrar ábyrgðar, mannlegrar reisnar og nýrrar tækni.
Fundurinn hófst á ávarpi Antonio Ammirati monsinjórs, aðalritara CCEE, sem bauð viðstadda velkomna fyrir hönd ráðsins. Hann hvatti einnig þátttakendur til að minnast Leó páfa XIV í bænum sínum, en páfi átti að gangast undir aðgerð sama dag til að láta fjarlægja hnút í lunga.
Því næst flutti Msgr. Bohdan Dzyurakh ávarp. Hann talaði um undrunina og þakklætið sem gjöf sköpunarverksins vekur, samhliða áhyggjum af þeim sárum sem umhverfisvá og vopnuð átök hafa valdið. Hann lagði áherslu á að umhyggja fyrir sköpunarverkinu krefðist einnig innri umbreytingar: „Að endurnýja hjörtu okkar til að vernda sköpunarverkið og verða boðberar friðar og sáttar – þetta er sú vegferð sem okkur er boðið að leggja upp í.“ Hann hvatti þátttakendur einnig til að fela páfa vernd Guðsmóðurinnar.
Markus Vogt prófessor í kristinni félagssiðfræði við Ludwig-Maximilian-háskólann í München, fjallaði um efnið „Gervigreind og framtíð sameiginlegs heimilis okkar: Könnun á vistfræðilegum þáttum ‚Magnifica Humanitas‘“. Hann gerði grein fyrir þeim tækifærum sem gervigreind býður upp á varðandi umhverfisvernd, allt frá stjórnun orkukerfa til vöktunar vistkerfa og takmörkunar úrgangs, en vakti jafnframt athygli á orku- og auðlindanotkun stafrænna innviða. Hann lagði áherslu á að aukin skilvirkni leiði ekki endilega til minni heildarnotkunar og undirstrikaði mikilvægi ábyrgðar, mannlegrar stjórnunar og þess að horft sé til almannaheilla. Hann hvatti kirkjur í Evrópu til að líta á umhverfismál og tæknisiðfræði sem nátengd svið og stuðla að fræðslu og samræðum við vísindasamfélagið.
Prófessor Alenka Arko, prófessor í trúarjátningafræði við Háskólann í Ljubljana og meðlimur í Alþjóðlegu guðfræðinefnd Páfagarðs, kynnti skjalið „Að annast sameiginlegt heimili okkar: Ábyrgt og bróðurlegt svar við hinum þríeina Guði“. Hún fjallaði um stöðu mannsins í sköpunarverkinu, merkingu syndar gegn sköpuninni og skaparanum, og þá möguleika sem felast í umhverfisvænni andlegri iðkun.
„Umsjónarmaðurinn er ekki eigandinn; það sem hann hefur umsjón með hefur verið honum trúað fyrir og hann þarf að standa skil á því,“ sagði hún. Með hliðsjón af hátíðarári, hvíldardegi og Evkaristíunni sýndi hún fram á hvernig trúarlíf getur ýtt undir þakklæti, virðingu fyrir mörkum og samstöðu. Hún lagði áherslu á að kristin von styðji við raunhæfa viðleitni til að hlúa að sameiginlegu heimili okkar og hjálpi okkur að horfa til framtíðar án þess að láta óttann yfirbuga okkur.
Dagskránni var framhaldið með því að þeir Volodymyr Misterman (prestur frá Úkraínu), Tomás Insúa (prófessor frá Oxford) og Stephen Taylor (prestur frá London) miðluðu af reynslu sinni og góðum starfsháttum.