Stórhátíð hl. Þorláks 19. júlí
Þann 19. júlí verður haldin stórhátíð hl. Þorláks. Tilefnið er Þorláksmessa á sumar, dagur sem Íslendingar héldu hátíðlegan frá árinu 1198, þegar bein hl. Þorláks voru grafin upp og færð í helgidóm í Skálholti.
– Á hátíðinni verður fjölbreytt dagskrá og margt skemmtilegt um að vera: Hoppukastali og leikir fyrir börnin, grill og drykkir, sölubásar, kaffihús og margt fleira.
– Márton Wirth organisti mun ljúka hátíðinni með glæsilegum tónleikum í Landakotskirkju.
– Aðgangur er ókeypis en það verða seldar pylsur, kökur og fleiri góðgerðir. Ágóði af sölunni rennur í sjóð tileinkuðum hl. Þorláki.
– Allir eru velkomnir að mæta og halda upp á þennan dag til heiðurs Þorláki helga, verndardýrling Íslands.