Miðvikudaginn 15. júlí verður farin pílagrímsferð til Maríulindar á Snæfellsnesi.
Dagskráin er eftirfarandi:
Rútan leggur af stað kl. 8.30 frá Landakotskirkju, Túngötu megin.
Næst frá Maríukirkju kl. 9.00.
Nestis- og kaffipása í félagsheimilinu Breiðablik á Snæfellsnesi.
Messa og hádegisverður í Stykkishólmi.
Eftir það er ekið til Maríulindar á Hellnum.
Áætluð koma til Reykjavíkur um kl. 19.30
Þeir sem ætla með í ár eru beðnir að skrá sig í síma 552 5388, eða á economy@catholica.is
Verið öll hjartanlega velkomin!
Þátttökugjald 6000 kr. fyrir fullorðna, 2000 kr. fyrir börn að 12 ára aldri.
Bankareikningur: 513-26-006262, kennitala: 680169-4629.