Ísland

Stofnfundur Samtaka trú- og lífsskoðunarfélaga

Árið 2006 undirrituðu fjórtán skráð trúfélög á Íslandi, að frumkvæði íslensku þjóðkirkjunnar,  stefnulýsingu um samráðsvettvang með það að markmiði að stuðla að gagnkvæmri virðingu og efla friðsamleg samskipti milli trúarbragða. Félögin hafa síðan haft með sér óformlegt samráð og samstarf. Aðildarfélög eru nú orðin tuttugu og sjö talsins og var því talið tímabært að stofna formleg samtök. Sr. Jakob Rolland prestur Kaþólsku kirkjunnar var skipaður talsmaður samtakanna.

Fimmtudaginn, þann 20. febrúar 2025 fór formleg stofnun samtaka trú- og lífsskoðunarfélaga fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Tilgangur samtakanna er „að stuðla að umburðarlyndi og virðingu meðal fólks í ýmsum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum með mismunandi trúarafstöðu og ólík lífsviðhorf.“ Samtökin hyggjast standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi.

Stofnfundinn sóttu um fimmtíu manns frá nær öllum trúfélögunum. Með stofnun samtakanna hafa þau fengið úthlutað kennitölu, skráningu og fjárræði. Kjörin var ný stjórn og er formaður þeirra Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins, og meðstjórnendur þau Mirela Protopapa frá Bahá’íum og Mörður Árnason, stjórnarmaður í Siðmennt.

Við þetta tilefni flutti forseti Íslands, Frú Halla Tómasdóttir ávarp þar sem hún fjallaði meðal annars um að Íslendingar hafi verið harla einsleit þjóð hvað varðar trú í nokkrar aldir eftir siðaskiptin. Á undanförnum áratugum hafi það breyst og nú standi tæplega helmingur landsmanna utan þjóðkirkjunnar.

„Ég held að það sé hollt okkur öllum að kynnast nýjum siðum og framandi sjónarmiðum. Það hefur í raun svipað gildi og að fara í ferðalag, að fræðast og þroskast og skilja þá um leið bæði hugsun og heimsmynd annarra sem og sína eigin. Það má því segja að samráðsvettvangur ykkar hafi líka menntunargildi, geti opnað augu fólks og aukið skilning þess bæði á sjálfu sér og öðrum,“ sagði forseti.

Ávarp forseta má lesa í heild hér

Ljósmyndir: Lárus Bjarnason