Norðurlönd

„Jörðin er okkar sameiginlega heimili“

FRÉTTATILKYNNING

Biskupar Norðurlanda: „Jörðin er sameiginlegt heimili okkar“
Birting hirðisbréfs um fólksflutninga og inngildingu
Þrándheimur/Kaupmannahöfn

Kaþólsku biskuparnir á Norðurlöndunum birtu sameiginlegt hirðisbréf um fólksflutninga og inngildingu á sunnudaginn. Það ber yfirskriftina „Jörðin er okkar sameiginlega heimili“. Þeir kalla eftir samúð, skilningi og hlutlægni í opinberri umræðu.

Fólksflutningar í Biblíunni

Biskuparnir minna   lesendur á að fólksflutningar hafa mótað öll tímabil mannkynssögunnar. Jesús Kristur kom einnig sem „farandmaður frá himni til jarðar“ og þurfti sem barn að leita hælis í Egyptalandi. Rétturinn til þess að lifa við öryggi eru grundvallarmannréttindi. Á sama tíma leggja biskuparnir áherslu á ábyrgð farandfólks á að virða lög og menningarleg gildi gestgjafalands síns og taka þátt í samfélagi þess.

Brýr í stað múra

Biskuparnir lýsa yfir áhyggjum af vaxandi einangrunarstefnu í Evrópu. Þótt hvert land verði að meta hver raunveruleg geta þess er til þess að taka á móti og aðlaga flóttamenn að samfélaginu, vara þeir við þröngsýnni þjóðernishyggju og brottvísun einstaklinga sem hafa aðlagast vel. Til að samþættingin verði farsæl þarf bæði að sigrast á sjálfseinangrun og forðast nauðungaraðlögun. Ennfremur hvetja þeir til að menn varist árásargirni og stjórnsemi í umræðunni um fólksflutninga.

Sóknir sem samkomustaðir

Biskuparnir líta á kaþólskar sóknir á norðurslóðum sem staði fyrir lifandi samþættingu og menningarlega fjölbreytni. Ákall þeirra: Kristnir menn mega ekki vísa frá fólki í neyð, heldur verða þeir að vera reiðubúnir að hjálpa þrátt fyrir takmarkaða aðstöðu.

Nánari upplýsingar: www.nordicbishopsconference.org

„Jörðin er okkar sameiginlega heimili“

Hirðisbréf Norðurlandabiskupa um farandfólk

25.10.2026

Kæru bræður og systur,

Þegar Guð sendi son sinn í heiminn kom hann sem farandmaður – frá himni til jarðar. Ekkert rúm var fyrir hann í gistihúsinu, aðeins fátækleg jata meðal húsdýranna. Hann var vart fæddur þegar menn vildu ráða hann af dögum og hann þurfti að flýja til Egyptalands. Þegar Guð varð maður deildi hann frá upphafi þeim erfiðu örlögum sem ótal menn á flótta eða á faraldsfæti hafa reynt í tímans rás.

Í Gamla testamentinu sjáum við hvernig Ísraelsþjóð þurfti ítrekað að leita skjóls annars staðar eða var neydd í útlegð. Allar götur síðan hefur fólk Guðs verið á ferðalagi, í pílagrímsferð í átt að hinu eilífa ríki Guðs. Við eigum engan varanlegan dvalarstað hér á jörðu.

Á sama tíma erum við kölluð til að skapa okkur heimili þar sem við búum og gera sem best úr veru okkar á jörðinni. Endanlegt föðurland okkar er á himnum en engu að síður ber okkur að byggja upp réttlátt og gott samfélag, þar sem forsjónin hefur komið okkur fyrir og leggja okkur fram um að lifa saman í samstöðu og gagnkvæmri umhyggju.

Sérhver manneskja á rétt á því að lifa góðu og friðsælu lífi. Á okkar tímum hafa fólksflutningar oft orðið tilefni til átaka sem leiða til sundrungar. Með samfélagskenningu sinni hjálpar kirkjan okkur að finna góðar lausnir og hvetur allt góðviljað fólk til þess að vinna saman að þessu mikilvæga málefni, sem er órjúfanlegur hluti af sögu mannkyns. Fólksflutningar hafa átt sér stað á öllum tímum og í öllum heimshlutum. Jörðin er sameiginlegt heimili okkar, þar sem sérhver maður hefur rétt til að finna sér stað til að búa á.

Fólk sem flytur til okkar getur valdið óróa. En það getur líka stuðlað að velferð þeirra þjóða sem það sest að hjá. Hvort sem fólk hefur þurft að yfirgefa heimaland sitt vegna hungursneyðar, stríðs eða ofsókna, eða hvort það hefur lagt af stað af fúsum og frjálsum vilja í leit að betra lífi, þá getur þetta fólk komið með dýrmæta innsýn, orku og færni. Það getur haft með sér auðlindir sem okkar eigin lönd skortir í augnablikinu.

Í fornöld breiddist kristin trú um allt Rómaveldi fyrir tilstilli trúboða og innflytjenda sem báru vitni um trú sína hvert sem þeir fóru. Frá kristinni Evrópu barst fagnaðarerindið síðar um allan heim.

Á síðari tímum var Kaþólska Kirkjan endurreist á Norðurlöndum – eftir aldalangar ofsóknir – fyrir tilstilli innflytjenda sem fluttu kaþólska trú sína með sér. Prestar og nunnur frá ýmsum heimshlutum hafa, af óeigingjarnri alúð, lagt sitt af mörkum til að byggja upp kirkjuna í Norður-Evrópu.

Fólksflutningar geta haft erfiðleika í för með sér. Tryggja þarf á vandaðan hátt að innflytjendur aðlagist nýju heimalandi ella geta komið upp alvarleg vandamál. Þeim sem koma úr öðrum menningarheimum þarf að veita stuðning svo þeir geti vaxið inn í framandi samfélag. Kirkjan kennir að innflytjendum beri „skylda til að virða, með þakklæti, efnislegan og andlegan arf þess lands sem tekur á móti þeim, að hlýða lögum þess og taka þátt í að bera samfélagslegar byrðar.“[i] Þetta framlag má þó ekki túlka þannig að það útiloki rétt þeirra til að varðveita sinn eigin menningararf.

Hætta er á að innflytjendur einangri sig og geri enga tilraun til þess að aðlagast nýjum aðstæðum. Með tímanum skapar slík þróun óróa og átök. Innflytjendur skulu hvattir til þess að aðlagast, en ekki skal þvinga þá til þess að tileinka sér menningu nýja landsins á kostnað eigin uppruna. Að finna þetta jafnvægi er ekki alltaf auðvelt en það er lífsnauðsynlegt fyrir framtíð landa okkar.

Mörg Evrópulönd loka nú landamærum sínum í auknum mæli. Á okkar tímum virðist fremur verið að reisa múra en brýr á milli þjóða og landa. Hvert ríki þarf eðlilega að meta hversu marga innflytjendur það getur tekið við. Þegar þetta mat bregst og fleiri koma inn í landið en hægt er að aðlaga með góðu móti, leiðir það til félagslegra vandamála. Þetta hefur aftur í för með sér harðari stefnu, þannig að nánast ómögulegt verður að komast inn fyrir landamærin – jafnvel fyrir flóttamenn og hælisleitendur sem njóta verndar alþjóðlegra reglna sem lönd okkar hafa skuldbundið sig til þess að fylgja.

Í sumum tilfellum hefur þróunin gengið svo langt að talið er æskilegt að vísa sem flestum úr landi – þar á meðal fólki sem hefur aðlagast vel og lagt margt mikilvægt af mörkum til samfélaga okkar.

Kirkjan verður að láta í sér heyra til varnar þeim sem eiga á hættu að sæta óréttlátri meðferð án gildrar ástæðu.

Kaþólsku sóknirnar okkar gegna oft hlutverki vettvangs fyrir aðlögun, þar sem tekið er á móti innflytjendum af kærleika og virðingu og þar sem þeir geta lært að lifa í sátt og samlyndi í nýja heimalandi sínu. Biskupsdæmin okkar eru eins konar suðupottar, þar sem ólíkir menningarheimar mætast. Messur og trúfræðsla fara fram á ýmsum tungumálum. Veitt er hagnýt aðstoð til að hjálpa hinum nýkomnu að rata um framandi stjórnsýslukerfi og átta sig á félagslegum viðmiðum.

Á þennan hátt læra innflytjendur, sem ganga til liðs við samfélög okkar, hvernig þeir geta lifað í samræmi við kaþólska trú sína í nýju landi. Þeir læra hvernig þeir geta lagt sitt af mörkum til uppbyggingar kirkjunnar á staðnum. Þegar þeir hafa orðið hluti af sókn verður auðveldara fyrir þá að vaxa inn í samfélagið í heild og leggja þar sitt af mörkum, byggt á eigin lífsreynslu og framlagi.

Norræn menning hefur í gegnum aldirnar auðgast af fólki alls staðar að úr heiminum, fólki sem hefur verið tekið opnum örmum og orðið hluti af samfélagi okkar. Það er bæn okkar og von að svo verði áfram.

Að rækta ást í garð þjóðar sinnar og kunna að meta hefðir hennar og arfleifð er af hinu góða. Þröngsýn þjóðernishyggja hlýtur hins vegar að vera kaþólskum mönnum – og öllu góðviljuðu fólki – andstyggð. Páfi hvetur okkur öll til að vinna að heimi þar sem fólk af ólíkum menningarheimum og trúarbrögðum getur lifað saman í friði, samvinnu og samstöðu. Hann hefur heimsótt staði á borð við Kanaríeyjar[ii] og Lampedusa[iii] til að kalla eftir aðstoð fyrir þá sem hafa neyðst til að flýja til annars og öruggara lands.

Ítrekað hvetur páfi okkur einnig til að „afvopna“ tungumál okkar.[iv] Hann biður okkur um að gæta þess hvernig við tölum hvert um annað og forðast ofsafengið orðalag. Við minnum sjálf okkur, og ykkur öll, á þetta atriði. Við sjáum nú um stundir að umfjöllun og umræða í samfélaginu um innflytjendamál hefur tilhneigingu til að verða harðari, einhliða og árásargjarnari. Þetta getur orðið að eins konar stjórnun eða áróðri sem við verðum að standa gegn.

Sem kristið fólk getum við ekki lokað hjörtum okkar fyrir varnarlausu og berskjölduðu fólki sem stendur við dyrnar hjá okkur. Við verðum að sjá Jesú í þeim sem er í neyð og treystir á hjálp okkar. Evrópa leitar nú að nýju jafnvægi á þessu sviði. Við verðum að vera raunsæ varðandi takmörk okkar, bæði hvað varðar mannauð og efnisleg úrræði. Samt sem áður verðum við alltaf að vera reiðubúin til að vísa aldrei frá bróður eða systur sem þjáist og leitar til okkar eftir hjálp.

Við, biskupar Norðurlanda, þökkum öllum þeim sem hafa komið til landa okkar erlendis frá og hafa, á ýmsan hátt, lagt margt mikilvægt af mörkum til uppbyggingar kirkju okkar og samfélags. Við biðjum fyrir löndum okkar, að þau megi áfram taka vel á móti fólki sem, í samfélagi við okkur öll, er reiðubúið að vinna að heimi þar sem allir geta lifað í friði og réttlæti, sátt og einingu.

Við felum lönd okkar vernd hinnar flekklausu Maríu meyjar – „Móður farandfólksins“, eins og segir í bænarákalli kirkjunnar. Við biðjum hana að bera fram bænir okkar, svo að við megum fylgja Jesú Kristi enn trúfastar í kærleika hans til hinna fátæku og varnarlausu.

+Erik Varden OSCO, Þrándheimi, Tromsø – Forseti

+Anders Arborelius kardináli OCD, Stokkhólmi

+Czeslaw Kozon, Kaupmannahöfn

+David Tencer OFMCap, Reykjavík

+Raimo Goyarrola, Helsinki

+Fredrik Hansen, Osló

——————————————–

[i] „Velstæðari þjóðir eru skyldugar, að því marki sem þeim er unnt, að taka við útlendingnum sem leitar öryggis og lífsafkomu sem hann fær ekki í sínu heimalandi. Opinber yfirvöld eiga að sjá til þess að þau náttúrulegu réttindi séu virt er setja gestinn undir verndarvæng þeirra sem taka við honum. Með hliðsjón af almannaheill sem pólitísk yfirvöld bera ábyrgð á, mega gera réttindi til búferlaflutninga háð ýmsum lagaskilyrðum einkum hvað varðar skyldur innflytjendanna gagnvart hinu nýja landi. Innflytjendur eru skyldugir að virða af þakklæti efnislega og andlega arfleifð þess lands sem tekur við þeim, hlíta lögum þess og axla sínar borgaralegu skyldur.“ – *Kaþólska kirkjan: Trúarjátning og kenning* (Catechism of the Catholic Church), gr. 2241.

[ii] „Kæra farandfólk, áður en ég segi nokkuð annað við ykkur, vil ég hneigja mig af virðingu fyrir ykkur. Þið eruð ekki bara tölur eða skrár. Þið eruð manneskjur sem hafið skilið eftir fjölskyldur og heimili. Þið eigið ykkur drauma sem enginn hefur rétt til að fyrirlíta. Ég vil þó líka segja ykkur að vernda verður líf ykkar. Felið ekki líf ykkar þeim sem versla með það. Trúið ekki þeim sem lofa paradís í skiptum fyrir líkama ykkar, peninga, þögn eða frelsi. Þessi svikulu loforð eru eins og „sírenusöngvar“; þetta er iðnaður dauðans. Þessi harmleikur verður að vera ákall til samvisku þeirra þjóða sem farandfólkið kemur frá – þjóða sem verða að skapa skilyrði fyrir friði, réttlæti og þróun. Þetta er einnig ákall til samvisku þeirra ríkja sem fólk ferðast um; þeim ber að vernda þau sem eru berskjölduð og ekki láta þau lenda í höndum glæpasamtaka. Þetta er sömuleiðis ákall til samvisku Evrópu – sem getur ekki haldið því fram að hún virði mannlega reisn á sama tíma og hún venst því að Miðjarðarhafið og Atlantshafið verði að ómerktum grafreitum – og til samvisku alþjóðasamfélagsins, sem er kallað til árangursríkrar og þrautseigrar samvinnu. Kirkjan verður einnig að taka við áskorunum. Að taka á móti farandfólki getur ekki verið aukaatriði sem fáeinir sjálfboðaliðar eiga að sinna. Við krjúpum við altarið til að tilbiðja Krist, sem er nærverandi í Evkaristíunni; frá honum fáum við styrkinn og hvatninguna til þess að iðka kærleika í verki. Þess vegna getum við ekki „gengið framhjá“ litlu bátunum og flekunum, því öll þjónusta og öll skuldbinding spretta af bæninni og leiða aftur til hennar.“ – Úr ávarpi í Las Palmas de Gran Canaria, 11. júní 2026.

[iii] „Það er enginn kærleikur til Guðs án kærleika til náungans, og enginn náungi er til ef ég nálgast hann ekki. Að nema staðar, snertast, krjúpa, gráta yfir þjáningu annarrar manneskju – eins og Jesús gerði – þýðir að stíga inn í hreyfiafl kærleikans; þá hreyfingu sem Guð hefur opinberað sig í. Kæru vinir, þeir sem leyfa sér að dragast inn í þetta hreyfiafl samúðar og miskunnsemi byrja að lifa á annan hátt, verða borgarar á annan hátt og vinna á annan hátt.“ Þá getur menning kærleikans – sú sem hinir heilögu fyrirrennarar mínir, Jóhannes XXIII, Páll VI og Jóhannes Páll II, sáu fyrir sér – sannarlega orðið að veruleika. Ásamt fjölda spámanna og píslarvotta síðustu aldar skildu þeir að aðeins miskunnsemi getur svarað djúpi mannshjartans og skelfingum stríðsins, með því að opna leiðina að nýju upphafi. Nú, þegar við stöndum á öxlum þessara risa, erum við gengin inn í árþúsund þar sem við verðum að veita menningu kærleikans birtingarmynd á sviði andlegs lífs, menningar, laga, stjórnmála og efnahagsmála. Megi sú mikla þjáning, sem við verðum vitni að, hjálpa okkur að skilja hversu róttæk þessi köllun er.“ – Predikun flutt á Lampedusa þann 4. júlí 2026.

[iv] „Fyrsta framlag okkar til að skapa mannúðlegra samfélag er að gæta orða okkar. „Afvopnum orðin, þá hjálpum við til við að afvopna heiminn.“ Orð búa yfir gríðarlegum mætti, eins og við finnum fyrir í daglegum samskiptum; töluð orð geta til dæmis breytt skapi okkar, til hins betra eða verra. „Friður hefst hjá hverju og einu okkar: í því hvernig við lítum á aðra, hlustum á aðra og tölum um aðra. Í þessu samhengi skiptir það höfuðmáli hvernig við eigum í samskiptum: við verðum að segja ‚nei‘ við stríði orða og mynda, við verðum að hafna stríðshugsunarhættinum.“ Við verðum því öll að rannsaka samvisku okkar varðandi þau orð sem við notum, þá fordóma sem við berum í brjósti og þá árásargirni – hvort sem hún er augljós eða dulin – sem býr í þeim. Við höfum raunverulegt tækifæri til að leggja okkar af mörkum til almannaheilla í hvert sinn sem við segjum satt, veitum viturleg ráð, styðjum þá sem þarfnast huggunar, fordæmum óréttlæti og veitum þeim rödd sem enga rödd hafa.“ – *Magnifica Humanitas*, 214. gr.

Ljósmynd: Marko Djurica REUTERS