Norðurlönd

Minning – Emil Paul Tscherrig kardináli

Emil Paul Tscherrig kardináli sem var postullegur sendiherra páfa á Norðurlöndum frá 2008 til 2012, lést fyrr í dag, 12. maí 2026.
Tscherrig erkibiskup, sem Frans páfi skipaði kardinála árið 2023, bjó í Róm eftir að hann lét af störfum árið 2024. Hann fæddist í Sviss árið 1947, elstur af átta börnum, var vígður til prests árið 1974 og hóf feril sinn í Páfagarði árið 1978.
Hann starfaði sem sendiherra í Búrúndí, Karíbahafinu, Suður-Kóreu og Mongólíu áður en hann kom til Norðurlandanna árið 2008. Eftir fjögur ár á Norðurlöndum, með aðsetur í Stokkhólmi, var hann sendur til Argentínu þar sem hann kynntist Jorge Mario Bergoglio erkibiskupi, sem var kjörinn páfi árið eftir. Árið 2017 var Tscherrig erkibiskup skipaður fyrsti sendiherra páfa sem ekki var af ítölskum uppruna í Ítalíu og San Marínó og þann 30. september 2023 var hann gerður að kardinála.
Blessuð sé minning hans.