Alþjóðamál

Fundur Leó páfa og frú Höllu Tómasdóttur

Mánudaginn 4. maí 2026 átti Leó XIV páfi fund með frú Höllu Tómasdóttur, forseta lýðveldisins Íslands. Eftir það hitti hún Pietro Parolin kardínála, æðsta embættismann Páfagarðs og Paul Richard Gallagher erkibiskup, ritara samskipta við önnur ríki og alþjóðastofnanir.
Þau áttu góðar viðræður í ráðuneytinu þar sem lýst var yfir þakklæti fyrir góð gagnkvæm samskipti og áhersla var lögð á jákvætt framlag kirkjunnar til að efla almannaheill í samfélaginu og einkum hvað varðar ungt fólk.
Samtalið snerist einnig um svæðisbundin og alþjóðleg málefni, sérstaklega hvað snertir hernaðarátök, þörf fyrir samræður og friðarhorfur.

Nánar má fræðast um þetta mál á vefsíðu Vatican News: