Dagana 18.-25. janúar 2022, fer fram alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristninnar. Forstöðumenn, prestar og leikmenn flytja hugleiðingu og bæn hvern þessara daga, sem hægt er að hlusta og horfa á Youtube rásinni: Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga.
Komið að leiðarenda? Staða kristninnar í Mið-Austurlöndum.
Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristninnar hefur verið haldin hérlendis síðan 1980. Það er Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á Íslandi sem hefur umsjón með þessu starfi. Ár hvert sendir nefnd á vegum Heimsráðs kirkna (WCC) og Páfaráðsins fyrir einingu kristninnar út efni sem kirkjur og kristileg samtök víða í heiminum hafa undirbúið.
Ný bæn verður flutt á rásinni hvern dag í þessari viku. Verið með og takið þátt.
Frekari upplýsingar á vef World Council of Churches