Fundur Evrópska biskuparáðsins um samræður á milli trúarbragða
Fundur Evrópska biskuparáðsins CCEE um samræður á milli trúarbragða fór fram 26. til 28. nóvember 2025. Yfirskrift fundarins var „Nostra Aetate, 60 árum síðar: Mismunandi sjónarhorn í samræðum kaþólskra og múslima“
Dagana 26. til 28. nóvember komu yfir þrjátíu þátttakendur, fulltrúar Evrópskra biskuparáðsins, guðfræðingar og vottar frá tuttugu Evrópulöndum, saman í hinni sögufrægu friðarborg Augsburg, á fund deildar innan Evrópska biskuparáðsins CCEE sem fjallar um um samræður á milli trúarbragða. Þema fundarins var: „Nostra Aetate, 60 árum síðar: Mismunandi sjónarhorn í samræðum kaþólskra og múslima“. Í upphafsávarpi fundarins vitnaði Msgr. Bertram Meier, biskup í Augsburg, í Nostra Aetate, grein nr. 5: „Við getum ekki raunverulega ákallað Guð, föður allra, ef við höfnum því að umgangast aðra manneskju í bróðerni, karl eða konu, skapaða eins og hún er í mynd Guðs.“
Aðalræða fyrsta dagsins var flutt af Hans hágöfgi Michael Louis Fitzgerald kardínála, sem byrjaði á því að fjalla um skjal Annars Vatíkanþingsins, um samskipti kirkjunnar við önnur trúarbrögð heimsins. Fitzgerald kardináli, sem byggði á mikilli reynslu sinni, m.a. sem forseti Postullegs ráðs viðræðna á milli trúflokka, bauð upp á uppörvandi persónulegar athuganir á Nostra Aetate og tillögur um hvernig mætti koma á framfæri hinu ríkulegu innihaldi skjalsins. Auk þess benti hann á mikilvægi þess að ná til annarra, byggja upp vináttu og persónuleg samskipti í fjölhliða viðræðum sem geta haft mörg þemu, svo sem frið, sem brennidepil.
Nýtt skjal, sem brátt verður gefið út undir yfirskriftinni „Samskipti kristinna og múslima í Þýskalandi“, var aðalumræðuefni að morgni annars dags þingsins með þátttöku prófessor Dr. Tobias Specker, SJ, prófessor við framhaldsnámsdeildar skólans Sankt Georgen í heimspeki og guðfræði í Frankfurt, Dr. Alexander Kalbarczyk forstöðumanni nefndarinnar um fólksflutninga og undirnefndar um samræður á milli trúarbragða innan þýska biskuparáðsins og íslamska fræðimanninum, prófessor Dr. Dr. h.c. Lejla Demiri, formaður íslamskra kenninga við Miðstöð íslamskrar guðfræði við Háskólann í Tübingen og heiðursprófessor við Háskólann í St Andrews. Vonir eru bundnar við að ritið verði dýrmæt heimild, ekki aðeins fyrir Þýskaland heldur alla Evrópu, þar sem grundvöllur samskipta kristinna og múslima verður kannaður og bent á leiðir til þess að samskiptin geti borið ávöxt í sameiginlegu lífi okkar.
Síðdegis færðist áherslan að efninu „Trúarleg samræður og ungmenni“ með líflegum gagnvirkum kynningum frá teymismeðlimum Eugen Biser-stofnunarinnar, Dr. Andreas Enders (kristin trú), Dr. Selcen Güzel (íslam) og Dr. Ruth Zeifert (gyðingdómur). Með tilvitnun í Dr. Biser, sem sagði: „Án samræðna getum við ekki byggt upp vonarríka framtíð“, kynntu þær skólaverkefni sem fjallar um trúarlega fjölbreytni og lýðræði sem stofnunin stóð fyrir. Þau fjölluðu einnig um mikilvægi rits, sem er velþekkt í Þýskalandi, um trúarlegar samræður, sem nýlega var þýtt á ensku og heitir: Orðabók samræðna: Grunnhugtök í kristni og íslam (Brill-Schöningh, 2025).
Bróðir Luc Bourgoin frá Taizé-samfélaginu deildi nýlegri jákvæðri reynslu af því að skipuleggja fund kristinna og múslima sem fjallaði um trúarleg málefni.
Á þriðja og síðasta degi greindu fulltrúar á biskuparáðstefnunni öðrum þátttakendur frá stöðu og reynslu af samræðum kristinna og múslima meðal hinna ýmsum þjóða. Nytsamleg sjónarmið og reynsla komu fram, þar sem skýrslurnar náðu til reynslu fjölmargra Evrópulanda. Ljósi var varpað á ýmsar aðgerðir en auk þess voru nokkur mikilvæg mál nefnd, svo sem vaxandi spenna og útlendingahatur tengd fólksflutningum, áhrif stríðsins milli Ísraels og Hamas og lagaleg staða og viðurkenning íslamskra samfélaga í ýmsum Evrópulöndum. Vonartákn voru meðal annars aukning á svæðisbundnu framtaki, fræðsluverkefni, sameiginlegt hátíðahald og sameiginlegar aðgerðir í þágu friðar og umhyggju fyrir jörðinni. Þemað um trúfrelsi kom fram sem mögulegt efni til þess að ræða á næsta fundi.
Hinn þriggja daga fundur einkenndist af víðtækum skoðanaskiptum í samræðum allra þátttakenda sem og fallegum helgiathöfnum sem haldnar voru í kirkjunum St. Moritz, St. Péturs í Perlach og Basilíkunni Saints Ulrich og Afra.
Í lokasamantekt sinni lýsti Brendan Leahy, yfirmaður deildar um samræður á milli trúarbragða innan Evrópska biskuparáðsins CCEE, yfir þakklæti sínu, ásamt þátttakendum, fyrir ríkulegt, uppbyggilegt og gagnlegt efni fundarins sem og fyrir tengslin sem mynduðust eða endurnýjuðust á meðan á samverunni stóð. Hann endurtók hugleiðingu eins þátttakenda sem benti á að „trúarbragðasamræður séu nú orðnar afar mikilvægur hluti af kirkjulífinu“. Hann minntist á að málefnið sem kom oft upp á fundinum var að mikilvægt sameiginlegt markmið samræðna kristinna og múslima væri friður, markmið sem svo nauðsynlegt er að endurvekja í Evrópu í dag.