Reykjavíkurbiskupsdæmi

Andlát

Guði hefur þóknast að kalla aftur til sín þjón sinn

Séra Hjalta Þorkelsson, prest sem andaðist á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 17. nóvember sl.

Séra Hjalti fæddist í Hólmavík 21. desember 1943, sonur hjónanna Þorkels Hjaltasonar kennara og Sigríðar Tómasdóttur klæðskera. Hann stundaði nám í Kennaraskóla Íslands, svo í Þýskalandi í Heidelberg þar sem hann kynntist Kaþólsku kirkjunni og tók kaþólska trú í munkaklaustrinu Neuburg. Hann fór í prestnám í Freiburg og Róm og tók prestvígslu 23. júlí 1983 í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti. Hann þjónaði í Landakoti til ársins 1988 samhliða kennarastörfum í Landakotsskóla, tók svo við embætti sóknarprests í Hafnarfirði og sá þar m.a. um byggingu St. Jósefskirkju á Jófríðarstöðum og hafði forgöngu við upphaf safnaðarstarfs á Suðurnesjum. Frá 1998 til 2005 var hann skólastjóri Landakotsskóla. Hann tók við embætti sóknarprests á Akureyri þangað til að hann settist í helgan stein árið 2018 í Stykkishólmi og dvaldi þar til æviloka.

Við minnumst séra Hjalta með hlýhug og þakklæti og biðjum fyrir honum. Við vottum aðstandendum hans samúð okkar.

Útför verður tilkynnt síðar.

Hann hvíli í friði.