Vorfundur Biskuparáðs Norðurlanda 2026
FRÉTTATILKYNNING:
Vorfundur Biskuparáðs Norðurlanda 2026 fór fram í Stykkishólmi dagana 16. til 20. mars.
Biskuparáðið hefur miklar áhyggjur af viðkvæmri og ófyrirsjáanlegri stöðu heimsmála. Umræður þingsins helguðust að miklu leyti af því. Biskuparáðið tekur undir orð páfa og kallar eftir því að vopn verði lögð niður tafarlaust og að allir leiðtogar heims stefni að friði af endurnýjuðum krafti. Meðvitað um að heimurinn stendur frammi fyrir fjölmörgum stríðum og vopnuðum átökum, þar af sum sem virðast ætíð gleymd, en öll hafa í för með sér hræðilegan og sívaxandi kostnað, gerði ráðið ákall forseta síns að sínu, um að vera óhrædd í að fylgja ákalli Krists um frið.
Afleiðingar stríðs og átaka er ekki nema ein af helstu ógnum við mannlegt líf og reisn þess. Ráðstefnan kallar trúaða á Norðurlöndum til þess að vera vakandi yfir vernd lífsins og leitast við að efla og styrkja pólitíska, félagslega og trúarlega viðleitni til þess að vernda þá sem eru í veikri stöðu og þá sem hafa enga rödd. Í þessu samhengi hefur ráðstefnan hafist handa við samningu hirðisbréfs um farandfólk og flóttamenn sem verður gefið út fyrir sumarið.
Hluti af starfi þingsins var helgaður trúfræðslumálum og fundi með forstöðumönnum og samstarfsaðilum trúfræðslu á Norðurlöndum. Biskuparáðið vill nota þetta tækifæri til að koma á framfæri djúpu þakklæti til allra trúfræðara, aðstoðarmanna, presta og fólki innan kirkjunnar sem vinna svo ötullega að því að boða trúna í biskupsdæmum okkar. Ráðið er meðvitað um hve kristniboð og trúboð er mikilvægt og hvetur alla trúaða til að taka þátt í þessu starfi, sem er óaðskiljanlegur hluti af skírnarköllun allra kristinna manna.
Samkoman helgaði mikinn tíma bæn og íhugun. Einnig var skipulögð pílagrímsferð til Maríulindar, sunnan við Stykkishólm, þar sem María mey birtist Guðmundi góða árið 1230. Þessi andlega áhersla og viðeigandi andi bróðurkærleika og samheldni sem ríkti meðal þátttakenda á ráðstefnunni var undirstrikaður sem raunveruleg birtingarmynd hins raunverulega samráðs (ens. synodality) sem Leó páfi hefur hvatt kirkjuna til þess að leita eftir. Um leið tjáir ráðið áhyggjur af sundrungu innan kirkjunnar og fagnar þeirri áherslu sem páfi leggur á einingu.
Biskuparáð Norðurlanda mun næst koma saman til haustþings í Paderborn í Þýskalandi dagana 21. til 25. september 2026.
Nordic Bishops’ Conference – Biskuparáð Norðurlanda
Spring Plenary Assembly 2026 – Vorþing 2026
16-20 March 2026
Stykkishólmur, Iceland