Kvöldið heppnaðist einstaklega vel. Það var mögnuð stemning með unga fólkinu okkar í Landskotskirkju. Yfir eitthundraðog sjötíu manns mættu “saman í einum anda”
Ungmenni úr ólíkum kirkjum lásu lestra, báðu bænir og fluttu vitnisburði. En umfram allt þá lofuðu þau Guð saman í töfrandi guðsþjónustu með dásamlegri tónlist. Á eftir var öllum boðið í safnaðarheimilið til samveru.
Við færum öllum sem tóku þátt í að gera þetta kvöld að veruleika innilegar þakkir!!