Hin árlega pílagrímsferð til Maríulindar verður farin miðvikudaginn 15. júlí. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst, annað hvort hjá ncm.ivan@gmail.com eða á skrifstofu kirkjunnar í síma 552 5388.
Fyrirkomulag verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, en nánar verður greint frá því á næstunni. Vinsamlega hafið með nesti. Rútan fer af stað frá Landakotskirkju við Túngötu kl. 8.30.
Þátttökugjald fyrir fullorðna er 6000 kr. og 2000 kr. fyrir börn að 12 ára aldri.
Á þessu ári verður messað í Fáskrúðarbakkakirkju um kl. 11.30.