Í tilefni af því að vorfundur biskuparáðs Norðurlanda fer að þessu sinni fram á Íslandi, nánar tiltekið í sókn hl. Frans frá Assisi í Stykkishólmi dagana 16. til 20. mars 2026 er Pétur Bürcher Reykjavíkurbiskup emeritus einnig staddur hér á landi.
Okkur var það mikil ánægja að hann tók þátt í kvöldmessu í Dómkirkju okkar, í gær sunnudaginn 15. mars, þar sem David biskup bauð hann velkominn heim.
Við biðjum alla að biðja fyrir biskupum okkar á þessari mikilvægu samkomu í Stykkishólmi!
Allir eru hjartanlega velkomnir í fyrstu messuna í dag 16. mars með kardinála og biskupum klukkan 20:00 í sóknarkirkjunni í Fransiskus hóteli í Stykkishólmi. Frá þriðjudegi til fimmtudags geta þeir sem hafa tök á sótt messu klukkan 7:30 og klukkan 17:30.