Þessa viku, 16. til 20. mars 2026, fara fram tveir stórir viðburðir í sókn hl. Frans frá Assisi í Stykkishólmi: Vorfundur biskuparáðs Norðurlanda og fundur trúfræðsludeilda Norðurlanda.
Allir eru hjartanlega velkomnir í fyrstu messuna í dag 16. mars með kardinála og biskupum klukkan 20:00 í sóknarkirkju okkar í Stykkishólmi. Frá þriðjudegi til fimmtudags geta þeir sem hafa tök á sótt messu klukkan 7:30 og klukkan 17:30.
Vinsamlegast biðjið fyrir að ljós Heilags Anda lýsi öllum sem taka þátt í þessum viðburðum!